Saturday, August 07, 2004

ég var að átta mig á því að sennilega á fíni B mótorinn minn eftir að fara að pissleka olíu þegar ég verð búinn að koma honum í gang. Sbr. mótorinn hans Birkis. Pakkdósir eiga það víst til að harðna og verða lélegar með tímanum, og alveg sérstaklega séu þær látnar standa langtímum saman. 13 ár er langur tími, jafnvel þó vélin hafi verið sett í gang öðru hvoru. Það er því kominn tími til að ég taki endanlega ákvörðun um hvernig vél ég ætla að hafa í henni. Úrvalið er eftirfarandi:

Taka upp B mótorinn.
8 ventla H mótor í (með K-Jetronic innspítingu eða MegaSquirt)
8 ventla túrbó H mótor
16 ventla mótor (10,1:1)
16 ventla túrbó mótor (9:1)
16 ventla 10,1:1 túrbó mótor með MegaSquirt

Fyrir alla mótorana nema B mótorinn þarf að gera lítilsháttar breytingu á eldveggnum til að koma vatnsdælunni fyrir. Hafandi séð Nóna og Birki að verki með slípirokkinn og logsuðuvélina þá hef ég engar áhyggjur af því. Einnig væri að sumu leiti gaman að hafa orginal vélina í henni (ég verð að fara að finna nafn á 99una, endilega komið með tillögur).

8 ventla H mótor með mekanísku innspítingunni, væri mjög auðveld skipti og myndi passa beint undir vélahlífina þegar búið væri að gera vatnsdælu breytinguna (reyndar gæti ég líka keypt rafmagnsvatnsdælu og losnað þar með við að breyta eldveggnum, en þá þyrfti að koma henni fyrir og ég efast um að það myndi líta jafn vel út og að halda í orginal vatnsdæluna). Þetta yrði ca. 20 hestafla aukning.

8 ventla túrbó. Ég á enga svoleiðis, auk þess sem ég ef ég færi að fara túrbó leiðina þá kæmi ekkert nema 16 ventla til greina.

16 ventla án túrbínu. Lang sparneytnasta vélin. Ca. 30 hestafla aukning, auk þess sem hægt væri að hafa hana mjög fyrirferða litla með því að setja á hana MegaSquirt (eða aðra innspítingu með MAP skynjara). Snyrtileg lausn og góð aflaukning og bensínsparnaður að auki (ekki það að það skipti miklu máli fyrir svona fornSAAB). Gallarnir eru aftur á mót þeir, að þá þarf að redda soggreinum úr 16 ventla 900, eða láta smíða þær fyrir sig (ekki slæmur kostur reyndar, en sjálfsagt soldið dýr). Auk þess sem hugsanlega þyrfti að sérsmíða pústgreinar, ég veit hreinlega ekki hvernig þær passa ofan í 99 vélarúmið.

16 ventla túrbó. Ca. 80 hross fram yfir blöndungs vélina. Sömu vandamál og með 16 ventla án túrbó, og til viðbótar þarf að koma fyrir millikæli og sennilega skera meira úr boddýinu til að koma túrbínunni fyrir.

16 ventla 10:1 túrbó. Þó ég hafi aldrei keyrt svoleiðis þá held ég að ég geti fullyrt að þetta sé lang skemmtilegasta vélin. Með tog kúrfu á við meðal togara og hröðun til að flengja hvaða Imprezu sem er. Sömu vandamál og fyrir venjulegu 16 ventla túrbó vélina. Yrði að vera knúin MegaSquirt eða annari forritanlegri innspítingu. Gírkassabrjótur.

Ég ætla strax að útiloka báða orginal túrbó mótorana. Ef ég ákveð að hafa túrbínu þá yrði það 16 ventla 10,1:1 túrbó vél. Annað hvort allt eða ekkert í þeim efnum. Ef ég tek B mótorinn upp úr þá fer hann ekkert oní aftur. 15 kg þyngri en H mótorinn og svona þannig að ég held að það sé alveg ljóst að það kemur ekki til greina.

Þá stendur valið á milli þriggja mótora. Það er augljóst hver þessara mótora er mest cool, en nokkuð óljóst hversu mikið mál verður að koma honum fyrir. 8 ventla mótorinn er lang auðveldasta leiðin. Og ef ég færi að láta smíða fyrir mig soggreinar þá gæti ég alveg eins látið smíða fyrir mig pústgreinar og látið túrbínuna fylgja með. Þá eru eftir tveir.

Best að fara að skoða hversu mikið pláss er fyrir 16 vetnla túrbó í vélasalnum. Endanlegri ákvörðun frestað þar til búið er að gera frekari athuganir.

Að lokum ein mynd sem ég tók í gær.

9 comments:

Jon said...

Túrbó, Túrbó, Túrbó, Túrbó, Túrbó..........

Nei annars það væri rosa flott að vera bara með 16V og vera bara reddý með túrbínu seinna, smíða flotta soggrein og hafa hann n/a þar til tími og aðstæður leifa. Ég skal láta þig hafa vél, hún er nefnilega fyrir mér hér í skúrnum, þú getur fengið að þrífa hana og græja fyrir niðursetningu hérna í skúrnum. Vélin er ekin 175.000 km.

SAAB kveðja, Nóni

Tiny said...

Getur maður hafnað svona tilboði? Ég held ekki. Mæti í skúrinn til þín við fysta tækifæri.

Tiny said...

Búinn að laga kommentin, hafði ekki áttað mig á þessum leiða galla fyrr en þú bentir mér á hann. Varðandi togið, þá kann það að vera að hærri þjappa hafi ekki jafn mikil áhrif og menn vilja vera að láta, en mér er alveg sama. Mig langar að prófa þetta og þá geri ég það bara. Þá hef ég líka samanburðinn á milli sömu vélar með 9:1 í þjöppu annarsvega og 10,1:1 hinsvegar.

Anonymous said...

Flott plön, en ég veit ekki hvernig þú færð það út að 10:1 mótor með túrbó sé sprækari en mótor með hærri þjöppu.

Baldur

Anonymous said...

sprækari en mótor með lægri þjöppu átti þetta að vera!

Baldur

Tiny said...

Túrbó mótor með háa þjöppu verður aldrei jafn kraftmikill og mótor með lægri þjöppu. Hann getur aftur á móti orðið skemmtilegri í venjulegum innanbæjarakstri. Það þarf ekki að snúa mótornum jafn hratt til að eitthvað fari að gerast. Ég held allavegana að þetta geti orðið skemmtilegt project og á þá bara eftir að brenna mig á því og læra af mistökunum.

Anonymous said...

Fallegur 99 saab.

Turbo eða Na.. Fyrst þú átt turbo þá getiru haft einn Na as daily driver ;)

Allanvega ættiru að finna nóg af 8v vélum hjá garðari og ein Na 8v eftir uppí vöku en að sjá hvernig vaka fór með þá *iss* , veit hvert vélinn úr hinum fór (þó það var gírkassinn sem var notaður.. á að fara í turbo saab hehe.. i hear the music Na kassi með Na kúplingu við turbo vél) :D

með kveðju Davíð/snifff
900T 16v ´86 , þarft svo að senda mér megasquirt forit og ég að safna fyrir megasquirt tölvu hehe ;)
tja 9000T Ecu virkar alveg þó vélinn fær of mikið bensín inná sig.. damn you nóni ;)

Anonymous said...

N/A er bara fyrir gamlar konur!

Baldur

women dog sex true stories said...

As soon as they passed from view, she spun to give John apiece of her mind and got tongue instead. Have you been watching the news.
beastiality true stories bees pony
brother sister sex stories
reverse interracial stories
female beastiality stories
femdom stories
As soon as they passed from view, she spun to give John apiece of her mind and got tongue instead. Have you been watching the news.