Tuesday, October 12, 2004

Nýjar felgur

Fékk ábendingu um gott sett af felgum uppi í Vöku í gær. Brunaði þangað eftir vinnu og sá þá þessar líka fínu minilite felgur. Fór svo og sótti þær áðan og pungaði út 8000 kr. fyrir. Það verður held ég að teljast ágætlega sloppið. Þær verða svo glerblásnar og sprautaðar áður en þær fara undir, og þá verða þær að sjálfsögðu líka orðnar vel skógaðar.

1 comment:

Kjarri said...

hmmm. er ekkert að gerast hérna á SAAB 99 vefnum. Hvernig er staða mála MR. SAABtan?